Um okkur | Fyrirspurn
 
 
Dekraðu við þig á Reykholti í Borgarfirði í þrjá daga frá 15. oktober og 10 nóvember og 10 desember !

Heilsulind býður upp á þriggja til fimm daga dekurpakka fyrir sextíu ára og eldri. Um er að ræða ferðir á frábærum kjörum þar sem allt er innifalið! Dekur, hreyfing og fræðsla í frábærum félagsskap og yndislegu umhverfi.

Gisting
- Gisting á glæsihótelinu Reykholti í Borgarfirði.
- Velbúin herbergi með öllum þægindum.
- Fullt fæði.

Dekur
Hótelið býður upp á notalega heita potta þar sem stífar axlir eru nuddaðar á meðan þú slakar á í pottinum. Jafnframt er frjáls aðgangur að heilsusetri hótelsins þar þú getur fengið innblástur í lofnarblómameðferð og skerpt athyglina í dagsbirtumeðferð. Í Kristal saltlampa stofu byggir þú upp sjálfsöryggið og þreyta vetrarins líður úr þér í slökunarherberginu. Í græna nuddherberginu er kostur á láta nuddara með töfrahendur nudda þreytu vetrarins úr skrokknum.

Hreyfing
Boðið verður upp á daglegar gönguferðir. Stafagöngu, pilates, jóga, teygjur, vaxtamótun og slökun. Tímarnir henta byrjendum sem lengra komnum. Fróðleikur um heilsurækt og lífsstíl. Gunnar Eyjólfsson kynnir chi-gong, töfrandi austurlenska hreyfingu.

Skemmtun
Kvöldvökur með fjölbreyttri skemmtun og síðast en ekki síst gefst tækifæri til að njóta góðs og skemmtilegs félagsskapar. Nægur tími til hvíldar og afslöppunar á velbúnum hótelherbergjum og glæsilegum salarkynnum.

Ekki missa af þessu frábæra tækifæri til að gera þér dagamun um Hvítasunnuna. Breyta um umhverfi og njóta tilbreyttni og ævintýra á hóteli með fullri þjónustu. Dekraðu við sjálfan þig og njóttu um leið þeirrar hamingju sem því fylgir.

Verðið aðeins 33.000 kr., miðað við tvo í herbergi. Einnig völ á einstaklingsherbergjum, fjölskylduherbergjum og svítu.

Fyrstir koma, fyrstir fá. Bókið strax í dag! Allar upplýsingar í síma 555-4700 eða á netfanginu ess11@hi.is.