Um okkur | Fyrirspurn
 
 
Elín Skúladóttir
Elín leggur stund á meistaranám í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands. Elín leggur stund á rannsóknir í Hjartavernd þar sem hún skoðar hreyfingu og svefn eldra fólks. Hún kennir einnig þolfimi í Hress í Hafnarfirði og mun í sumar leiðbeina eldra fólki um Hreyfingu á Hrafnistu í Hafnarfirði.

Elín hefur auk þess einkaþjálfaravottun frá hinum virtu bandarísku samtökum, American Council on Exercise. Hún hefur þolfimileiðbeinendaréttindi frá Hreyfingu. Hún lærði jógakennslu hjá Yogafit í Bretlandi og pilates hjá Multitrax í Bretlandi. Hún hefur auk þess sótt ótal námskeið tengd heilsu og lífsstíl.

Elín hefur unnið sem einkaþjálfari og þolfimileiðbeinandi um árabil. Hún hefur meðal annars unnið sem þolfimileiðbeinandi og lífsstílsleiðbeinandi á sex stjörnu skemmtiferðarskipi. Kennt átaksnámskeið, jóga, pilates, spinning, hugleiðslu, kickbox og pallatíma.

Tilbaka á forsíðu